Frysti snurvoðabáturinn frá Trefjum?,2016


Nokkuð merkilegur bátur sem verður notaður á snurvoð, og  líklegast er þetta fyrsti báturinn sem Trefjar smíða sem verður notaður á Snurvoð.


Útgerðarfélagið Sydvest Fiskeri í Bergen í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan
Cleopatra bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.
Að útgerðinni stendur Lars Tore Skår.


Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Skår Jr.  Báturinn mælist 11brúttótonn.  Skår Jr
er af gerðinni Cleopatra 33.

Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT N90 410hö tengd ZF286IV gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Simrad.
Báturinn er einnig útbúin með  hliðarskrúfu að framan tengdri sjálfstýringu bátsins.
 Báturinn er útbúinn til veiða með snurvoð.  Spil, trommlur og hýfingarbúnaður er
frá Hydema. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 12stk 380L kör í lest.  Svefnpláss er fyrir 2-3 í lúkar ásamt
eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.