Heimsókn í Hafdísi SU,2016
kíkti á félaga mína á Hafdísi SU, enn þeir voru með um 5 tonn. sagði Andrés skipstjóri að vegna þess að þeir þurftu að leggja línuna í björtu ( mátti ekki leggja fyrr enn klukkan 10:00) þá hefði kanski verið betra að bíða daginn, enn það vantaði fisk,


Kiddó Arnberg vélstjóri á krananum og Óli á bryggjunni. Andrés að koma með beitu.

Strákarnir voru ekki lengi að rusla upp 5 tonnum og tóm kör og ís niður aftur,

Og meðan ég var þarna um borð í Hafdísi SU þá fór Bryndís KE á sjóinn. flottur bátur Bryndís KE, Myndir Gísli Reynisson