Íslensku Ríkistogarnir. ,2016
Núna er togararallið í fullum gangi.
og tveir af þeim togunum sem taka þátt í því eru í eigi íslenska ríkisins. Nefnilega hafrannsóknarskipin Árni Friðriksson RE og Bjarni Sæmundsson RE.
Núna í mars þá hafa þessi skip afla nokkuð vel í togararallinu.
Árni Friðriksson RE hefur landað 90,1 tonni í 3 löndunum og mest 37 tonn í löndun. landað bæði á Ísafirði og í Reykjavík,
Bjarni Sæmundsson RE hefur landað 42 tonn í 4 löndunum og hefur öllum þeim afla verið landað á Siglufirði,
Þetta er reyndar ekki eini aflinn sem Árni Friðriksson RE hefur landað vegna þess að Árni Friðriksson RE landaði smá afla í febrúar sem og líka í fyrrahaust. Samtals hefur því Árni Friðriksson RE landað 193 tonnum ,
Samtals hafa því hinir íslensku ríkistogarar landað um 235 tonna afla sem hlýtur að teljast ansi gott í þágu hafrannsókna hérna við land,

Árni Friðriksson RE mynd Einar as

Bjarni Sæmundsson RE Mynd Hreggviður,