Nýr Fjölnir GK á heimleið,2015
Gamla Rifsnes SH sem að Vísir ehf í Grindavík keyptu í gegnum dótturfyrirtæki sitt og notaði meðal annars til veiðar í Kanada með góðum árangri. hefur verið í ansi miklum breytingum í Póllandi og nú styttist í að báturinn komi til Íslands.
Fjölnir GK 157 eins og hann heitir núna var lengdur um 9 metra. brúin var hækkuð og miklar breytingar gerðar á afturskipi.
fyrir áhöfnina á núverandi Fjölni GK þá munar þar ansi miklu um mun stærri lesti enn í gamla Fjölni GK rúmar lestin 260 kör af minni gerinni eða um 91 tonn af fiski
í nýja bátnum þá rúmar lestin 330 kör af minni gerðinni og eru það um 115 tonn af fiski í lestina.
Beitningavélin sem er núna í Fjölni GK verður færð yfir í nýja bátinn. Vélin er um 40 þúsund króka.

Fjölnir GK mynd Hafþór Þórðarson