Sjóstangaveiðibátar árið 2016

Eins og talað var um hérna á síðunni þá munu listar fara að birtast hérna um aflahæstu báta í hverjum flokki fyrir sig fyrir árið 2016.


Ég ætla reyndar að byrja á nýjum lista og má segja að þessi listi sé ekki  með íslenskum sjómönnum.

því að á vestfjörðum er orðin ansi mikil ferðamennska að selja ferðamönnum sem helst koma frá Þýskalandi til Sjóstangaveiða og má segja að tvö fyrirtæki þar séu fyrirferðarmest .

Þessi tvö fyrirtæki eru Iceland Sea Angling HF sem er með bátanna sína í Súðavík og Tálknafirði  

hitt fyrirtækið er Iceland Pro Fishing og er það staðsett með báta sína á Flateyri og Suðureyri.  Bátarnir þeirra heita allir Bobby og svo númer 1 og uppí 22.  

Alls lönduðu þessir bátar með þýskum sjómönnum um borð samtals 436 tonnum í 2381 löndunum eða 183 kíló í löndun.
á milli fyrirtækjanna þá er það þannig að Iceland Pro Fishing er með 139,8 tonn og Iceland Sea Angling HF með 296,2 tonn
í prósentum þá er Iceland Sea Angling með 68 % af heildinni og Iceland Pro Fishing með 32%.

AFlahæstur bátanna var Bliki ÍS sem var með 22 tonn og hérna að neðan er list yfir þessa báta.  Athygli vekur að einn þessara báta er ekki frá Vestfjörðum og er það Ýmir AK sem var á Akranesi.

Sæti Nafn Afli Landnir Meðalafli
39 Ýmir AK 80 1.96 17 0.115
38 Bobby 4 ÍS 364 3.23 18 0.179
37 Bobby 13 ÍS 373 6.23 31 0.201
36 Bobby 2 ÍS 362 6.37 27 0.236
35 Bobby 1 ÍS 361 6.50 39 0.167
34 Bobby 22 ÍS 382 6.53 43 0.152
33 Bobby 9 ÍS 369 8.19 38 0.215
32 Bobby 6 ÍS 366 8.88 41 0.216
31 Bobby 7 ÍS 367 8.92 55 0.162
30 Óðinshani BA 407 9.49 53 0.179
29 Bobby 20 ÍS 380 9.87 53 0.186
28 Bobby 8 ÍS 368 9.94 49 0.202
27 Himbrimi BA 415 9.95 57 0.175
26 Bobby 10 ÍS 370 10.04 52 0.193
25 Bobby 5 ÍS 365 10.26 50 0.205
24 Toppskarfur ÍS 417 10.77 76 0.141
23 Már BA 406 10.78 60 0.179
22 Bobby 15 ÍS 375 10.83 50 0.216
21 Kría ÍS 411 10.87 81 0.134
20 Bobby 3 ÍS 363 11.10 52 0.214
19 Bobby 11 ÍS 371 11.18 49 0.228
18 Lundi ÍS 406 11.58 81 0.143
17 Stuttnefja BA 408 11.62 67 0.174
16 Svanur BA 413 11.69 73 0.161
15 Bobby 17 ÍS 377 11.73 54 0.217
14 Kjói ÍS 427 12.08 79 0.153
13 Fýll ÍS 412 12.13 76 0.159
12 Teista ÍS 407 12.17 79 0.154
11 Álka ÍS 409 12.26 85 0.144
10 Langvía ÍS 416 12.40 71 0.174
9 Svala ÍS 431 12.43 51 0.243
8 Lómur ÍS 410 12.58 82 0.153
7 Dílaskarfur ÍS 418 13.75 75 0.183
6 Hávella ÍS 426 14.69 83 0.177
5 Þórshani BA 411 15.21 69 0.221
4 Álft ÍS 413 16.95 87 0.195
3 Sendlingur ÍS 415 18.59 90 0.207
2 Haftyrðill ÍS 408 19.72 97 0.203
1 Bliki ÍS 414 22.82 90 0.254


Bliki ÍS mynd Arnbjörn Eiriksson